top of page

Vertu betri í fótbolta

Aukaæfingar fyrir 16 ára og eldri

Fyrir 16 ára og eldri snúast aukaæfingar meira um markvissa vinnu, gæði í framkvæmd og að bæta þá hluti sem skipta máli í leik. Hér er ekki nóg að gera æfinguna bara hratt. Hún þarf að vera gerð af einbeitingu og með tilgangi.

Æfingarnar í þessum flokki eru fyrir leikmenn sem vilja bæta boltastjórn, fyrstu snertingu, sendingar, skot, hraða, veikari fótinn, stefnubreytingar og leiklíkar hreyfingar. Sumar æfingar er hægt að gera einn, aðrar með félaga eða með einföldum búnaði eins og keilum, vegg eða marki.

Markmiðið er að æfa eins og leikmaður sem vill taka næsta skref: betri ákvarðanir, betri stjórn undir hraða og meiri nákvæmni þegar þreyta kemur inn.

Æfðu með gæði í huga. Fyrst rétt framkvæmd, síðan meiri hraði, meiri ákefð og meiri kröfur.

Smelltu á æfingu til að opna hana í stærri glugga

bottom of page